Sá glæsilegi ungfoli sem Hömluholtsbúið notaði s.l. sumar var sýndur á ungfolasýningu þann 28. mars. Til hamingju Fellskotsfjölskylda og vangi ykkur allt í haginn.
28. mars. 2010. Ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands var í Ölfushöllinni . Áhorfendur voru ekki margir en folarnir voru mjög jafnir og flottir. Byggingadómar hófust kl. 15.00 og síðan byrjaði aðalsýningin kl. 20.00. Hringur mætti á sýninguna en hann verður þriggja vetra í vor og er undan Hnotu frá Fellskoti og Hróðri frá Refstöðum. Dómararnir völdu Hring í fyrsta sætið á sýningunni.